09.01.2007 17:20:29 / Pungsviti

R.I.P.

Þessi síða er dauð. Bæ.

» 7 hafa sagt sína skoðun

23.12.2006 18:08:54 / Andri

BLOGG!

Blasar...

Jæja hvernig væri að fara að blogga aðeins. Jólinn alveg að koma og ég í góðum gír bara:D og svo allira að koma í friðargöngu á eftir.

Þá er ég semsagt aggurat bara um það bil hættur í síðuni bara núna!

Bleee...


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 18:42:27 / Siggi Konfekt

Pungsviti 1 árs!

Í dag er liðið eitt ár frá því að bloggsíðan pungsviti kom til sögunnar. Ég vil þakka þeim sem hafa kíkt á þessa síðu og pungsvitana sem hafa verið duglegir að blogga.

Sérstakar þakkir fá: Egill fyrir að vera duglegastur allra að blogga. Og Jón Viðar núverandi Stoopid maður fyrir að fatta uppá þessu snilldarnafni. Og að lokum Sigurvin fyrir að blogga á seinustu stundu þegar þessi síða var á leið í gröfina.

Engar þakkir fá: Andri fyrir að hafa enga trú á síðunni og tilhlökkun hans við dauða þessarar síðu. Og þeir sem svöruðu "Já, því miður" í skoðannakönnunni sem er í gangi núna.

Þó að Stoopid sé vinsælli bloggsíða þá má alls ekki hætta að heimsækja þessa í leiðinni. Hver veit? Kanski munu einhverjir taka upp á því að blogga aftur? Og Andri, ég tek þetta fyrir ofan til baka ef þú byrjar að blogga.

Annars, óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla og farsælt komandi ár!

Siggi Kon


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 01:18:25 / Pungsviti

...

Pungsviti

1.árs

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 17:13:31 / Siggi Konfekt

Blogg barasta.

Kominn tími á eitt helvíti.

Þessi dagur var einfaldur. Læra, vafra um netið og körfuboltaleikur.
En nú eru 20 dagar þangað til Pungsvitinn verður eins árs! Þá er um að gera að blogga smá(á þessari síðu). Ég nátturulega hef verið mjög aktívur að blogga og uppfæra á pungsvita(annað en sumir) en það er bara ekkert mikið að gerast hjá mér þessa dagana og kem ég með því miður mjög stutt blogg.:( En þið megið búast við einum risa á afmælisdaginn!;) Ég er að spá í að búa til aulahúmorsfrían-sketchaþátt sem innheldur ekki aulahúmor(nema þið viljið það að sjálfsögðu;)) og er ég kominn með nokkrar hugmyndir af sketchum. En ég þarf crew í það..  er einhver til í að hjálpa mér að búa hann til? t.d. þarf ég klippara og myndatökumann og leikara, ég er til í leika sjálfur! ;) Commentið ef ykkur líst vel eða illa á það. Annars verður þessi hugmynd að engu.
Ég er búinn að setja upp youtube dálk hérna uppi og þar getið þið horft á vel völd videó.

En annars er þetta allt sem ég hef að segja..

Siggi Konni


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 15:21:12 / Pungsviti

OMGOMGOMG!!!

Já!! ég er að fara að blogga!!! Maður verður að koma þessari síðu aftur til lífs! Skora á hina strákana til að byrja líka ;)

Já núna eru prófin eins og margir vita og hef ég verið afskaplega latur við að læra fyrir þetta, maður er alltaf að fara að byrja en síðan kemur alltaf eitthvað sem maður þarf að fara að gera :P Íslenska og Danska á morgun, var í stærðfræði í dag og gekk mér bara andskoti vel ekki erfiðasta próf sem ég hef tekið. Ég hef gert margt og mikið síðan ég bloggaði seinast og nenni ég ekki að fara telja það upp því það er mjööööög langt síðan það var :D Maður hefur alltaf verið latur við þetta helvíti. Er að fara uppí gámastöð á eftir ætli maður taki ekki Gíslasöguna bara með sér og lesi aðeins fyrir þetta blessaða próf og svo seinna í kvöld ætlum við Ási að reyna spila smávegis. Já hef ekki meira að segja í bili vonandi verður maður duglegri við þetta í framtíðinni :D

P.S. minni alla á ballið á morgun, allir að mæta með skrautlega slæðu

Sigurvin

» 6 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 17:40:14 / Siggi Konfekt

Ég er að blogga! Happy now?

Það vill barasta enginn blogga inn á þessa síðu.. pungsvitinn er að mestu leyti orðinn úreltur.. Nú er stoopid búinn að taka völdin..

Það er mikið að gerast hjá mér allavega. Það er próf framundan, og allir í mínum bekk eru að drepast úr stressi nánast og ojfnbvpoiregbovwyovibpsadnvmasndklvbavklrebflgbiuebuiboib. (LOL stóðst ekki mátið:P)

Nú er kominn nýr dálkur í ýmislegt eða bombaytv skecthar endilega kíkið!

Ok er að fara að læra bæ.

Siggi AnaKonda


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 10:27:10 / Pungsviti

28000

ladies and gentlemen, nú eru komnir 28000 manns inná síðuna :D

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 10:34:33 / Pungsviti

27000 gestir!

Ladies and gentlemen, yfir 27000 gestir hafa komið á síðuna! Gaman af því!


» 11 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 13:23:26 / Siggi Konfekt

Fyndin fés 5 kominn út!!

Hæ! Ég er í skólanum núna í tölvustofunni að fræðast um raunveruleikinn sem er leikur um framtíðarplanið sitt. Enn annar leikur er kominn í leikjadálkinn sem heitir Ultimate pie theft og leikur þú wee bull sem er að stela kökunum frá weebl and bob. En allavega var ég bara að vafra um netið og fann Fyndin fés 5!

http://video.google.com/videoplay?docid=-3725942540037133032&q=funny+faces+5

Svo fann ég annað myndband með þeim sama og gerði Fyndin fés myndböndin.

http://video.google.com/videoplay?docid=1199360525656040510&q=we+like+acid

Jæja, bara að láta vita.

Ok bæ!

Siggi Konn

P.s. Ég setti eldri blogg dálk hér til hægri svo þið getið skoðað eldri færslunar okkar.

P.s.2 Fyndin fés 1,2,3 og 4 er að finna í Maí 2006 færslunum, þannig að þeir sem hafa ekki séð hin fésin geta kíkt á það þar.  


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.10.2006 16:06:50 / Pungsviti

26000 Gestir komnir á pungsvitann

Nei hann er sko ekki dauður því núna fyrir stuttu tikkaði litla talann upp í hægra horninnu upp í 26000!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 11:11:11 / Siggi Konfekt

ahemm

Bara að láta ykkur vita að það eru tveir nýjir leikir komnir á leikjatengilinn:

Four Second Frenzy og Chaos Faction.

Haldiði músinni lengi yfir tenglinum til að sjá umfjöllun um leikinn.

Það er líka komið nýtt í Siggi Corner eða Rifrildi við Smarterchild þar sem ég er stríða því.


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.09.2006 12:23:52 / jón!

Aaaalló.

Hömm hömm... Jón að blogga :s eitthvað þarf nú að gera varðandi þessa blessuðu síðu, eins og Sigurður nokkur Konráð talaði um hér í fyrru bloggi þá virðist hún sannarlega á leiðinni í gröfina barasta... Og því ætla ég að gera mitt besta, (þar sem hin síðan mín er sama og dauð hvort eð er) og blogga hér, fyrsta bloggið mitt á pungsvitanum í nokkuð langan tíma barasta!

Svo já.. ekki mikið hefur drifið á daginn í dag þar sem hann er tiltölulega nýbyrjaður, vaknaði í morgun við að einhver dinglaði bjöllunni klukkan 11:30 og var að sníkja pening -.-' Í gær hinsvegar þaaá... Fór ég í skólann já, og þar var svona voða rólegt, svo endaði þetta á 2 valtímum í UTM, og þá gerðist nokk spennandi, þannig var að það eru komnar nýjar tölvur í tölvustofuna, og gömlu voru fluttar inná bókasafn, en þar er svo lítið öryggið (skildist mér á Eyþóri) að þarf að taka alla skjánna úr sambandi áður en það er slegið inn :P Svo að það voru allir skjáirnir teknir úr sambandi, nema einn sem gleymdist.. Og þegar það var slegið inn þá sprakk hreinlega talvan sem var í sambandi :D Það var nokkuð skemmtileg sjón fannst mér. Heyrðist þétt "búmm" og svo læddist út hvítur reykur úr tölvunni, miikið af hvítum reyk :) En svo við opnuðum glugga og allt barasta í gúddí þarna inni svo, en fengum ekkert að nota tölvurnar :( Svo við Arnar og Hlynur fórum inn í stofu og sömdum þetta fínasta handrit að hryllilega ógnvekjandi hryllingsmynd! Sem fór í tökur í gærvköldi.

Náðum meira og minna að klára upptökur í gær, vantar 1 atriði, svo er klippingin eftir og þá er það barasta komið, bíðið spennt! Því þessi kemur vonandi á internetið víðfræga.

En ekki meira sem ég nenni að skrifa núna, gottíbili - bæ jón!

Bætt við: Vil endilega minna á að það er komið heellingur af nýju drasli, þá aðallega undir dálknum "Ýmislegt". Nýtt drasl má finna m.a. í; Word on the Street, Myndasögur Jóns, Hve Margir, (eigum brátt von á nýrri frétt í PFS) og Mynd Dagsins.

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 01:12:01 / Siggi Konfekt

Hnetur!!!1!11!11!

Hæ.

Einn pungsveittur sem talar. Ég vil benda á að þessi síða er ekki dauð. En þó að margir hafa verið slappir með það að blogga, og þá meina ég MJÖG slappir... þá er þessi síða ekki komin undir græna torfu ennþá. Það er bara verst að sjá duglegasta bloggarann kveðja pungsvitann.:cry: Já, ég er að tala um þig Egill. Allavega mun gera allt sem í mínu valdi stendur að halda þessari síðu gangandi og vona bara að sem flestir hérna byrji að blogga aftur. 

Yfir og út.

Siggi Konn.


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.07.2006 14:59:33 / Pungsviti

sumarfrí

 

-

SUMARFRÍ!!!

Nú erum við komnir í sumarfrí!

komum hressir inn að liðnu sumarfríi

PUNGSVITI!


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12