|
|
31.03.2006 13:04:24 / Pungsviti
Jæja, þá er árshátíðin afstaðin og við Pungsvitarnir létum okkur
að sjálfsögðu ekki vanta. Mættum þarna í okkar fínasta pússi með
hatta og sólgleraugu og vöktum mikla athygli. Skólastjórinn meira
að segja hrósaði okkur fyrir uppátækið. Það voru teknar
einhverjar myndir þarna sem við ætlum að koma sem fyrst inná
síðuna. En við fengum að sjálfsögðu einhver verðlaun fyrir að vera
fallegir og þess háttar en þetta eru þau.
Herra GSS: Egill
Stjarna skólans: Kristján Pétur
Kynþokki skólans: Ágúst Ingi
Krútt skólans: Andri Freyr
Par skólans: Egill og Gunnhildur
Þetta eru verðlaunin sem við Pungsvitanum fengum og erum við
gífurlega stoltir af þessu.

hér eru allir PUNGSVITARNIR komnir saman á mynd
 |
Ábending: Það er komin ný skoðanakönnun og
getiði séð úrslitin úr gömlu skoðanakönnuninni á korknum
"Skoðanakannanir".
kv. Pungsviti
»
30.03.2006 14:37:07 / Kristjanp
Já gott fólk árshátíðin í kvöld og já það er ekkert annað nema
drundrandi stuð. Árshátíðin hjá yngri krökkunum var í gær sem var
hin flottasta og þar ber hæðst að nefna "Sílvíu Nótt" sem var já
nánast í öllum atriðinum en svona er það nú bara. Dagurinn í dag er
búinn að vera mjög rólegur sem er allveg mjög mjög gott. Í skólanum
í morgun var bara kenndir 3 tímar og svo var hellings bil
þannig ég,guðni og gullkornnið hann Siggi benni fórum bara útí
beiker og fengum við okkur að borða þar. Já ég skrifaði hér í
bloggi um daginn um leik minn við Guðna í NBA en nú ætla ég að
segja þetta leyndarmál mitt Guðni ég var með þetta
stillt rookie þannig Nash hitti úr nánast öllum skotunum og
Joe sömuleiðis líka bara koma þessu að því hann var að verða
geðveikur á tímabili hann Guðni var byrjaður að berja í borð
og dundra niður stólum. Nú skora ég á að Jón og Gústi fari að
láta inn fréttir inná fréttastöðina þá má halda að hún sé að deyja
út. Herðu einn aulabrandari að lokum sem Gústi er búin að vera
velta sér fyrir um þó nokkurn tíma svona eru þessir
björgvinarsveitamenn hann hljómar svona "færeyjingar eru ekki með
msn..þeir vita ekki hvað það er!"ég spurði þá á msn.. Svona fer
heimskan með suma menn eins og Ágúst Inga. Jæja nú fer að líða að
lokum þessa bloggs. Njótið ein DV-FORSÍÐA.
Tange!

Kv Kristján Péé,
»
29.03.2006 21:17:03 / Egill
Jæja...
Djöfull er þetta frábær tilfinning. Maður er bara orðin
kassadama. Já, ég og Biggi vorum í kennslu á kassa í dag og var það
bara fínt sko. Ekkert samt sem maður vildi gera 10 tíma á dag alla
daga vikunnar en fínt svona af og til. En fyrir ykkur hreindýrin
sem vita ekki hvað ég er að meina með orðinu "kassi" þá er það
afgreiðslukassi í versluninni Bónus, bara að hafa þetta á
hreinu.
Ég var að koma af árshátíð hjá 1.- 6. bekk og var þetta svona
allt í lagi hjá þessum krökkum. Hápunkturinn að mínu mati var þegar
5. bekkur var með lagið "Til hamingju Ísland" og sérstaklega að sjá
Kidda Magga (bróðir Bigga) dansa. Hann var að leika þarna annahvorn
dansarann í atriðinu og þetta voru ekkert nema fagurfræði og góðir
limaburðir sem drengurinn sýndi, enda bróðir Bigga og þá er ekki að
spyrja að því. En ef ég man rétt þá kom þetta lag 4 sinnum á
þessari árshátíð og er það já svolítið mikið en who cares?
Svo er það bara árshátíðin hjá 7. - 10. bekk á morgun og djöfull
held ég að það verði gaman maður. Við Pungsvitarnir látum okkur að
sjálfsögðu ekki vanta og við munum mæta í okkar fínasta pússi. Ef
fregnir mínar eru réttar þá er búið að panta borð fyrir Pungsvitann
og Þjóðfélagið, en ef þetta er rétt þá erum við að tala um ansi
fallegt fólk sem mun sitja þarna saman.
En svo er það bara Sundlaugarpartý á föstudaginn og þá erum við
líka að tala um 7.-10. bekk. Þetta verður án efa hörku partý,
tónlist í botni og bara gaman. En komið gott í bili.
EE

Kiddi Maggi á árshátíðinni.
»
28.03.2006 18:58:23 / Siggi Konfekt
Ég bara varð að setja þetta þarna...
http://www.youtube.com/watch?v=hqsPn8fVq3Y&eurl=http%3A%2F%2Fwww%2Enintendogal%2Ecom%2F
Fannar Már þegar hann fékk fyrstu leikjatölvuna sína....
Bara grín skomm.. er ekkert að meina þetta.
»
27.03.2006 12:56:24 / Pungsviti
Gústi Kolla orðinn 16
ára!
27. mars!
Til hamingju með það!
---
Smá ábending: Í dálknum
"Ýmislegt" er kominn nýr korkur sem heitir "Skoðanakannanir". Þar
getiði séð gamlar skoðanakannanir og einnig útskýringar á
skoðanakönnununum sem eru í gangi hverju sinni.
»
26.03.2006 22:48:36 / Egill
Komið þið sæl gott fólk.
Ansi chilluð helgi senn á enda og er það bara jákvætt. Ég held
að maður hafi ekkert gott af því að slaka of mikið á. Maður endar
sennilega bara í þunglyndi eða eitthvað...eða allavega, ég myndi
ekki lifa það af of lengi.
Helgin byrjaði samt að mínu mati á föstudaginn en þá var skóli,
Böddi Kræklingur kom þar óvænt inní íþróttatíma hjá okkur og dæmdi
þar í fótboltanum og hann stóð sig með prýði kallinn. Reyndar
átti sér stað atvik sem andstæðingar mínir voru ekki
sáttir við en það var þannig að Guðna (markvörður í liðinu mínu)
tók útspark eða útkast og ekki vildi betur til en að hann
kastaði yfir allann völlinn og beint útaf án þess að
boltinn hafi komið við neinn. Ég öskraði í léttu gríni
"Eigum'ann" og viti menn Böddi dæmdi okkur boltann. Já, ekki
er á allt kosið fyrir andstæðinga mína! En eftir íþróttir var enska
og þar var Böddi mættur galvaskur að vanda í þessum frábæru
sokkum sem hann sagði að amma sín hefði gefið honum. Eftir
skóla fór ég á íþróttaráðsfund og þar var ákveðið að halda
************** og verður það ábyggilega stuð. Eftir fund hélt ég
heim á leið og lagði mig í dágóðann tíma eða þangað til ég
fékk ansi ánægjulegt símtal. Var það ekki nema kall frá Símanum að
hringja og segist vera að koma að laga netið. Ég
nývaknaður stóð þarna alveg gáttaður en svo þegar ég var
alveg vaknaður áttaði ég mig á því að það sem ég hafði beðið í
26 daga var að verða að veruleika, já, NETIÐ Í LAG. Svo fór
ég bara á körfuboltaæfingu og svo bara heim og á NETIÐ! Svo
var ég bara á netinu allt kvöldið og það var bara fínt sko. Svo
klukkan hálfeitt færði ég mig um set eða inní stofu en þar í
imbakassanum var að byrja NBA leikur, Det-Ind, þetta var svona
"lala" leikur, mínir menn (Det) ekki að spila neinn stjörnuolta en
Ben Wallace reddaði þessu með að blocka Danny Granger ef
ég man rétt og Detroit unnu 75-72. Eftir leikinn fór ég bara að
sofa, dauðþreyttur. Svo vaknaði ég steinsofandi morgunin eftir
og viti menn, fór beint í tölvuna. Svo hringdi Böddi rétt
eftir hádegi og hann var svo kominn stuttu seinna, en eitt þarf ég
að segja, Böddi hringdi í HEIMASÍMANN og svo spurði hann mig í lok
símtalsins hvort ég væri HEIMA. Svo eru þessi Sauðkræklingar, ekki
með öllu mjalla. Svo vorum við bara í tölvunni (Funky Truck og
Blastbilliards á leikjanet.is) og var það ýkja gaman. Svo fór maður
í kvöldmat til ömmu og afa og var það snilld eins og venjulega,
gríðarlega góður matur! Uuu...já, ég horfði á Spaugstofuna heima
hjá þeim og fór svo heim og át FULLT af nammi og var í tölvunni
eitthvað fram eftir kvöldi. Vaknaði svo galvaskur morgunin eftir
klukkan rúmlega 11 og fór í tölvuna (elska þessa tölvu, þar að
segja þegar netið er í lagi). Klukkan 3 var svo leikur Njarðvík og
KR og var hann svona alltílæ, Njarðvík rústaði honum 101-65 eða
eitthvað og ég fór í tölvuna. Svo var bara kjúttlingur (eins og
Nonni Magg orðar það) í matinn og svo fór ég að hitta Gunnhildi og
Rakel. Já, maður ekki búin að hitta Gunnhildi síðan á fimmtudaginn
en þær voru að keppa í Grindavík og unnu þar 2 leiki en töpuðu 2 og
eru komnar í undanúrslit, til hamingju með það
stelpur! Svo var ég bara að koma heim og fer sennilega
bráðum að sofa og svo er það bara skóli á morgun, eða hvað? Ætlar
einhver að taka þátt í þessu verkfalli? Ég held að þetta endi með
því að allir mæti. En komið gott...
EE

»
26.03.2006 01:44:26 / Kristjanp
Já kærir hálsar
eitt stikki blogg. Jæja skagfirska sveiflan komin í bæjin en
fyrir þaá sem vita ekki hver það er þá er það Böddi Aðalsteins
kappinn kom á föstudagsæfinguna með okkur sem var jú bara
yndislegt að vera með þessu leftara að spila körfubolta. Já
seinustu dagar er búnir að vera svona nákvæmlega eins skóli og
síðan æfing og 2 tíma bil og svo aftur æfing. Juju við lentum í
4.sæti á mótinu á Ásvöllum höfðum alveg getað verið betri t.d á
móti borgarnesi og Haukum byrjuðum svaka vel á móti Haukum vorum
bara allir á eldi hittum ú hvaða skotum sem við tókum svo í
seinni hálfleik hrundi allt, svo var það baráttan um
vesturlandið sem við töpuðum með 2 fúlt þar einfaldlega vorum
við ekki vaknaðir en nóg af körfubolta í þetta sinn. Árshátíðin
á næsta fimmtudag og ríkir bara mikil spenna reika með alveg
gríðarlegi skemmtum. Já í dag er ég bara búin að
vera gera hitt og þetta t.d sund og djöfull er gott að fá frí
eina helgi ekki búin að gerast lengi eins og Egill segir í
blogginu sínu hér fyrir neðan svo rétt í þessu var ég að vinna
GS Í NBA LIVE 90-62 hef ekki unnið Guðna í þessum leik ja guð má
vita hvað lengi. Já svo á morgun er það bara að sofa út og fara
síðan í sund og liggja í leti. Jæja ætla ekki að hafa þetta
mikið lengra að sinni þannig bara já bless.....

Kristján Péé....ávallt hress og þolir ekkert stress 
»
25.03.2006 13:21:00 / Egill
Úff...nú er ég sko glaður. Kominn aftur hérna
eftir 26 daga fjarveru, já gott fólk, 26 DAGAR!!! Ég hélt ég
myndi ekki halda þetta út eeen ég gerði það og er það vonandi
bara jákvætt...enda er þessi síða í sögulegu lágmarki en það
stendur allt til bóta enda er komin fréttastöð á síðuna og þar á
margt skemmtilegt eftir að gerast þannig stay tuned.
Dagar mínir í netleysinu hafa verið ansi
innihaldslausir en samt ekki. Þeir hafa aðallega verið svona: Skóli
kl. 8 til c.a. 2. Svefn eftir skóla og svo æfing og svo út um
kvöldið. Svona hefur þetta eiginlega verið í þessa 26 daga og ég
hef ekkert fengið að sofa út. Annaðhvort er maður að vinna eða
keppa í körfunni, en maður vill nú frekar vera að keppa heldur en
að vera sofandi, ójá. Talandi um körfubolta hefur þetta verið ansi
mögnuð vika frá honum séð. Byrjaði reyndar ekki vel en þá eins og
allir vita duttu Snæfell út eftir frábæra rimmu við KR. En ég hef
verið að æfa óvenju mikið þessa vikuna og það ekkert nema stuð. Á
mánudaginn var nú bara létt æfing og þriðjudaginn var ekki æfing,
miðvikudaginn var æfing kl. 14:30 og svo aftir kl. 18:30 til
20:00...þarna í millitíðinni var maður í ruslinu. Svo var það
fimmtudagurinn og þá var æfing frá 18:30 til 21:00 en við vorum
reyndar að spila æfingaleik við stelpurnar síðasta hálftímann eða
eitthvað. Þær eru nú einmitt að keppa núna í Grindavík og við óskum
þeim bara góðs gengis...vonandi getum við fært ykkur fréttir af
úrslitum hjá þeim þegar þau berast en bara kannski.
Loksins komið helgarFRÍ en maður er ekki búinn að fá slíkt í
hátt í 2 mánuði. Síðasta helgi var alveg frábær. Við vorum að keppa
á Ásvöllum og unnum þar 2 leiki en töpuðum 3 sem þýðir að við
lentum í 4. sæti og komumst þar af leiðandi í undanúrslit sem við
mætum liðinu sem endaði í 1. sæti og viti menn, það er auðvitað lið
Fjölnis. En við gerum allt sem við getum í þeim leik og vonandi
komum við á óvart og tökum þessa kettlinga. En ætli þetta sé ekki
komið gott í bili og ég æta halda áfram að chilla...loksins!
Nýtt á síðunni:
Slatti í Word On The Street
3 ný myndbönd
1 nýtt lag
Nýjar myndir
Ný skoðanakönnun
EE
»
23.03.2006 18:52:01 / Grjóni
Góðan daginn,
Jæja, komið að mér að blogga, búið að vera mjög rólegt þennan
mánuð og helvítis skítakuldi endalaust og allt að detta niður á
þessari síðu. Verðum að fara að bæta okkur.
En núna í fréttum er helst það að herinn er loksins að fara
burt, þessi svakalegi her sem við höfðum hérna, las/heyrði
einhversstaðar að ef það væri gerð árás á Ísland þá væru flugvélar
í BNA fljótari að komast til Íslands heldur en þessi her sem var
hérna að starta flugvélunum, svo hvern andskotann er fólkið að
kvarta? Svo las ég einhversstaðar að það ætti að stofna íslenskan
her, ég ætlaði að drepast úr hlátri, sá strax fyrir mér einhverja
60 ára gamla bónda sitjandi á kind með neftóbaksdós í annari
hendinni og kindabyssu í hinni.
En maður spyr sjálfan sig, Þarf virkilega 300.000 manna þjóð sem
býr á eyju einhversstaðar í Norður-Evrópu her? Held ekki. Efast
líka stórkostlega að þessir múslimar sem allir eru svo hræddir um
að sprengi upp Ísland, hafi einhverntímann heyrt um Ísland. En hvað
er svona merkilegt á Íslandi sem þessir "sandapar" ættu að sprengja
upp? Ef að merkilegasta byggingin í þessu landi sé einhver asnaleg
kirkja þá langar mig nú bara ennþá meira að flytja úr þessu
landi.
Ég meina ættum við ekki frekar að vera hrædd um að Grænlendingar
fari að gera innrás á Ísland? algjör vitleysa að vera svona
paranoid.
Hef ekkert meira að segja svo bara bæbæ.
kv. Axel
minni á bloggið hjá Ágústi hér fyrir neðan. 

»
23.03.2006 17:07:35 / Pungsviti
Já sælt veri fólkið Ágúst heilsar ykkur hérna ferskur og
glaður á fallegum fimmtudagseftirnúni. en já þessi vika hefur
verið ömurleg fyrir utan skemmtilegt kvöld í gærkvöldi þegar
skarphéðinn fór framm en staðan í keppnini kom í dag. og vorum
við í 10. í fyrsta sæti með +14 stig en 9. með +13 síðan rak 8.
með -27 en þetta er fyrsta árið og fannst mér þau alveg eiga
skilinn sigur í gær í mögnuðum leik á móti 9.b en þið getið
lesið meira um þetta í blogginu hans jóns hérna fyrir
neðan 
en að öðru Árshátíð er á næsta leiti og verður hún á hóelinu
mjög spennandi alt það fínn matur og alles og er aldrei að vita
nema við pungsveittu fáum okkur eina sona 
Maður spyr sig
Eins og allir vita eru verðlaun þarna og búumst við
pungsvitarnir að við fáum okkar skerf af þeim það af Egill fyrir að
vera sona fjandi fallegur 
Fréttir af pungsvitanum þá er eins og flestir vita PFS kominn
á fullt og má búast við næstu frétt á næstudögum einnig var
einhver nr.12000 sem gestur inná síðuna en það gerðist núna um
daginn gaman af því 
En
ég held þeta sé nóg
Pís át
Gústi K |
»
22.03.2006 21:29:19 / jón!
Jæja, þá rita ég hér í bloggið, enda langt síðan síðast, nú er ég
bara nýstiginn inn úr Skarphéðinskeppnini, og ég verð að segja að
ég naut þess kvölds til hins fulls. Þó svo liðið sem ég keppti með
töpuðum báðum leikjunum var þetta ógnarskemmtilegt, fyrsti
leikurinn (9.bekkur og 8. bekkur) var alveg ógnarlegur, ég hef nú
setið sem áhorfandi í öll skiptin í fyrra og hitt'í'fyrra, og hef
aldrei verið jafn spenntur  . Það endaði sem jafntefli, 13 - 13,
og svo var bráðabani sem endaði líka í jafntefli 18-18 og svo varð
ein vítaspurning sem 9. bekkur vann, naumlega ;-) vil þakka öllum
keppendum fyrir leikina og skemmtunina, en að sjálfsögðu var ég
ekki eini pungsvitinn sem tók þátt þarna, Ágúst Ingi og Andri Freyr
heyðu kapp á velli líka, Andri með 9. bekk og Ágúst með 10. bekk
(hehe einn á lið  það mætti segja að pungurinn væri bara
allstaðar hehe... hee...)
en já, ég hef voða lítið verið að stússa svona fyrir utan þetta,
svo er náttúrulega árshátíð í næstu viku, og vikuna eftir það fer
ég í svokallaða námsferð á laugar í sælingsdal.. veit ekki alveg
hvað verður gert þar.. en vonandi verður það nú gaman :/ (missi af
onyxia og læti). Já.. svo eftir ferðina verður páskafrí og svo
kemur úrslitakeppnin í skarphéðni
Þetta var allt.. Jón kveður og þakkar fyrir sig ásamt kvöldinu.
»
19.03.2006 20:03:53 / Pungsviti
Nei, síðan er ekki hætt, ekki óttast heldur megið þið gleðjast
yfir komandi tíðindum. Nýr dagskráliður er að koma í hús, undir
dálknum Ýmislegt kynnum við "Pungsvitafréttastöðin" eða PFS.
Verkefni #003 er loksins orðið að veruleika.
PFS hefur að geyma tvær fréttategundir,
hljóðritaðar og vélritaðar en þið
ættuð að þekkja þær í sundur einmitt á merkjunum, en ef þið gerið
það ekki þá ættuð þið að íhuga ykkar gang!
En já, síðuna má finna hér til hliðar (eftir 5mínútur) ásamt
fyrstu fréttinni sem er eftir Ágúst og endurorðuð af Jóni, en
heiðurinn fær Ágúst fyrir hana. Pungsvitafréttastöðin mun líklegast
verða haldin uppi af þeim tveim piltunum.
Njótið vel !
»
17.03.2006 14:14:18 / Sigurvin
Já nú er komið að því Sigurvin bloggar í þriðja sinn!
Blessuð, í gær sigruðu Snæfellingar KR í svakalega spennandi
leik maður var allveg að farast þarna í x-inu, ég er mjög sáttur
með úrslitin. Bárður er bara besti þjálfarinn á landinu að
mínu mati! En nóg um það, í morgun vaknaði ég klukkan 07:15 og fór
í blöðin. Síðan var bara skóli. Ég sofnaði á gólfínu í náttúru
fræði, þetta var í annað skitpi í þessari viku sem ég sofna á
gólfinu undir borðinu mínu, mér leið allveg svakalega vel þegar ég
vaknaði Um helgina er mót hjá okkur strákonum í 9. flokk
drengja á Ásvöllum í hafnarfirði, við stefnum auðvitað á sigur þar!
Ný búnir að keppa úrslit í bikarnum þrátt fyrir tap erum við mjög
vel stemndir í þetta mót ´held ég bara, fyrri daginn verður enginn
Jón Ó Jónsson en hann Gústi Petrínar kemur og verður með okkur
þarna sem er nú í lagi tel ég. Auðvitað hvet ég alla til að mæta
sem geta! Þetta er nóg held ég takk fyrir mig.
»
15.03.2006 19:32:21 / Siggi Konfekt
Það hefur enginn bloggað núna uppá síkastið þannig að ég ætla að
blogga smá hérna. Hann Egill hefur því miður ekki getað bloggað
lengi vegna netleysis, þannig að á næstu grösum mun hann ekki geta
bloggað í ómeðvitaðan tíma(nema að hann noti aðra tölvu auðvitað).
En maður er bara nýbúinn í kleinunni og lykta eins líka. Ég vildi
að það væri svona sérstakur ventill staðsettur í loftræstingunni,
svo að öll lykt myndi sogast inni hana. Þannig minnka líkurnar á
því að maður yrði étinn þegar maður kemur nálægt einhverjum. En í
kvöld er Skarphéðinn í X-inu, auðvitað styðjum við okkar menn! Ég
er líka að bíða eftir sérstöku "kalli" því að ég er að fara komast
í ljúffenga pítsu! *slurp* Ég verð nú bara að styðja Axel við það
að þessi síða er að breytast í BIG FAT BASKETBALL! Ég hvet
pungsveitta í að gera eitthvað í málinu! Minni aftur á nýja ljóðið
mitt sem er staðsett í The Siggi Corner. Endilega kíkiði á það! Sæl
að sinni! Siggi Konfessions of a dangerous mind WTF?????
»
13.03.2006 14:08:10 / Kristjanp
Góðan dag gott fólk Kristján með ykkur á þessum yndislega
mánudegi kl núna er akkurat 13:52, Já bikarinn úslitaleikurinn um
helgina töpuðum með 28 á móti sterku fjölnisliði. Jæja dagurinn
í gær var nú svona frekar slóí vaknaði kl 12 við Píparann hann
þurft að komast í tölvuna þannig ég á hvað bara að drífa mig á
fætur sem ég gerði. Hringdi í Guðna og sp hann hvort hann nennti í
sund juju auðvitað nennti þessi kappi í sund hafði ekkert að
gera þannig við fórum í sund og vorum þar í 2 tíma, síðan fór ég
bara hejmme og fór í tölvuna. Mót um helgina og það verður á
Ásvöllum nánar tiltekið Hafnarfirði þar sem ungfrú Rakel mun brátt
flytjast reikna að Nonni mæju verði ekki með okkur á laugardaginn
því Snæfell er að fara keppa við kr bjössi leo og félagar allveg að
klúðra þessu í drullu.Á hvað að henda hérna 3 DV-FORSÍÐUM inn og
bara njótið, jæja svo lenti ég í slag við eitthvern beikarason um
daginn um eitthvern snaga en tók hann létt þessi pungur drullu
aumur. Það voru nú nokkuð góðar fréttir um daginn fyrir lið
Snæfells að Vaffrainn er komin aftur til spilamennsku en hann er
búin að vera á sjúkralista í dágóðan tíma en eins og orðatiltakið
segir seint koma sumir en koma þó ..Svo er fjölskyldan að Lagholti
15 búin að fá nýjan bíl sægræni farinn í Borgó og blár jepplingur
lítur dagsins ljós í hólminum herðu verð að fara hætta ætla að
leggja mig fyrir æfingu.



kv Kristján Péé
»
Síður: 1 2
|
|