24.06.2006 23:06:15 / Egill

2. vika

Jæja gott fólk, þá er maður mættur aftur, ferskur að vanda!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Nei nei, þetta var reyndar smá grín.

En þá er viku númer 2 lokið í æfingabúðunum og er þetta bara svakalega gaman. Lærir slatta á þessu og svona. Ég kom heim í Hólminn í gær um kvöldmatarleytið en ég fékk far með Kiddó bróðir heim. Við brunuðum á Porsche-inum hans á meðan við voru í "bílalitaleiknum". Ég stóð upp sem sigurvegari að leik loknum enda enginn furða, ég var með besta litinn, ég ætla ekki segja hvaða litur það var en þið megið endilega giska á það hér í skoðunum/commentum! :D

Í dag svaf ég frekar lengi eða til hálf 3 en þá fékk maður sér "morgunmat" og fór svo að horfa á HM. Eftir leikinn skellti ég mér út og sló grasið og hékk svo í tölvunni fram að kvöldmat. Eftir mat horfði ég á fyrri hálfleikinn í leik Argentínu og Mexíkó. Svo fór ég í golf með pabba, það var helvíti gaman. Núna situr maður bara í tölvunni og ætli maður verði ekki í henni eitthvað aðeins lengur.

Ég fer svo aftur til Reykjavíkur eftir kvöldmat á morgun en þá hefst 3. vikan í æfingabúðunum. Þangað til á næstu helgi...veriði sæl!

EE


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 00:51:37 / Egill

Snilld!

Jæja gott fólk, held að það sé kominn tími á eitt stykki.

Fyrstu vikunni lokið í körfuboltaæfingabúðunum og get ég ekki annað sagt en að þetta sé hin mesta skemmtun og er ég búinn að læra helling af þessu. Ég kom svo heim í Stykkishólm í gær (föstudag) einhverntímann um kvöldið og var bara heim það kvöld. Vaknaði svo um hádegi í morgun og fór þá með Hjalta í PES4 eða Pro Evolution Soccer 4 eða Atvinnumanna Þróunar Fótbolti 4 eins og við ákváðum að þýða þetta. Þessi leikur er svo margfalt betri en Fifa og er í raun hlægilegt að bera þá saman, svo mikill er munurinn. En eftir nokkra leiki fór ég uppí Hólmgarð og horfði á það sem þar fór fram, fékk mér svona eina Þórhildi á Pulsuvagninum og fór svo aftur í PES4. Eftir það fór ég heim og horfði á Handboltalandsleikinn en Ísland tapaði þeim leik.

Svo var komið að kvöldinu, það var hreint út sagt STÓRKOSTLEGT! Byrjaði á því að fara á ball sem var reyndar hundleiðinlegt en þá fór ég bara heim til Sunnu frænku og hoppaði á trampólíni eins og ég ætti lífið að leysa. Þarna voru ég, Sunna, Ágúst, Kristján, Guðni, Óli Spekú og Rakel. Eftir hoppið ætluðu allir að fara heim til sín en þá kom ég með þessa frábæru hugmynd að fara niður á bryggju og kasta renghlíf niður af Súgandisey og við lögðum af stað. Þegar við komum niður á bryggju voru Sævar og Magda þar á Jet Ski og þau buðu Kristjáni að fara eina ferð en hann sagðist ætla að fara seinna, hann vildi ekki blotna. En ég sagðist vilja fara og Magda leyfði mér það, þá var ekki aftur snúið, ALLIR VILDU FARA! :D En já, þessi ferð var hreint út sagt mögnuð! Svo þegar allir voru búnir að fara eina þá spurði Sævar hvort einhver vildi blotna og ég og Kristján vildum það og Kristján fór með honum. Hann kom gegnblautur til baka eftir að hafa dottið ofaní. Svo fór ég og eftir ítrekaðar tilraunir hjá Sævari að ná mér ofaní þá tókst honum það ekki og þegar við vorum að koma í land þá ákvað ég bara að stökkva útí og var það vægast sagt hressandi!

Ég er ekki frá því að þetta sé eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert á minni næstum 15 ára lífsleið, þetta fer allavega á Topp 10!

Núna veit maður hvað maður gerir við peningana þegar maður eignast þá, kaupir Jet Ski!

EE


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.06.2006 17:10:57 / Siggi Konfekt

Hérna er einn djöfull...

GÓÐAN DAGINN OG VELKOMIN(N) Á PUNGSVITANN.

Ég elska Caps Lock;)

En hvað með það, það hefur enginn bloggað núna nýlega nema Kristján P. þannig að það kemur ein stutt færsla frá mér.Undanfarna daga hef ég verið í helvíti síðan skólinn var slitinn, og mér finnst það ógeðslega skrýtið afhverju fólk er svona lazy að nenna ekki að andskotast(afsakið orðbragðið) til slá og raka garðinn þeirra sjálft en að láta nokkra krakkaandskota til að gera verkin fyrir sig. Ekki nóg með það, því á morgun þarf ég að burðast með huge bassatrommu á maganum/bakinu og marsera fyrir framan alla í asnalegum búningi. Þannig að það er bara "hell" framundan á morgun.

Bless í bili.

Siggi Kon.

P.S. Ég næ þessu FO**IN lagi ekki úr hausinum á mér!! Þetta er bara drepfyndið og festir sig í heilanum á manni!!! SKYLDUÁHORF LEIDÍS END DJENTÚLMEN!

http://www.weebls-stuff.com/toons/crabs/


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 23:06:18 / Kristjanp

Vofff,,,Swek black

Jæja sælt veri fólkið KPA hérna með ykkur á kantinum...Já undarfarinr dagar er búnir að vera fínir golfmótr+vinna+körfuboltaæfing.. í gær var það golfmót sem mér gekk hræðilega á 94 högg 18 holur alls ekki nógu gott. Fyrir þá sem vita ekki hvað ég er að vinna við þá er ég golfvallar starfsmaður sem er allveg kvfloðið starf semsagt mjög gott jobb. Var á körfuboltaæfingu áðan sem var verulega svussí æfing bara púl og verður það næstu æfingar sem er ömulegt en samt...Já herðu svo fékk ég þennan stórskemmtilega link sendan á msn,það voru myndir af hinuu geysilegu frábæru klappstýrum okkar snæfellinga.já ætla að far ljúka þessu "mikkla" bloggi...

 

 

Textinn sem fylgir myndinni á mbl.is:

Tindastóll í vandræðum

TINDASTÓLL og Njarðvík áttu samkvæmt öllu að berjast um fjórða sætið í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í lokaumferð hennar í kvöld. MYNDATEXTI: Ungu stúlkurnar sem sjá um dansatriði á milli leikhluta í Stykkishólmi hafa gaman af því sem þær eru að gera og Björg Guðrún Einarsdóttir leyndi ekki ánægju sinni.

[ kvenna og karla karla íþróttir 15000000 körfubolti 15008000 ]

 

Svo ein önnur sem ég fann í tölvunni,,,

Þetta eru þær ofurgellur Rakel,Arna, Beggí,Linda kópavogsmær

svo Björg,Sessa og síðast en ekki síðst Ellen,,,

 

Þrusuleg breyting á þeim stöllum Örnu og Rakel frá því í gamla daga.

 

kv Kristján Péé

 


» 14 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 22:55:47 / Egill

06.06.06

Já vá, þvílík dagsetning í gær, 06.06.06. Þessi dagur var líka snilld! Byrjaði reyndar á vinnu til hádegis en svo fór ég til Rvk. og var meiningin að fara á afmælistónleika Bubba. Ég fór nú fyrst í einhverjir búðir og þannig, keypti mér utanáliggjandiharðandisk,  sem er í lagi. Svo um kvöldið fór maður á þessa stórbrotnu og margfrábæru tónleika. Þvílík snilld, þvílíkur kraftur í fimmtugum karlamanni. Hitinn í húsinu var frekar mikill og tók það mann ekki langann tíma að blotna í gegn af svita. Ég var einhversstaðar á miðju gólfinu að ég held og ég sá allt sem ég vildi sjá. Já., þetta var snilld.

Í dag kom inn um lúguna bréf með ansi skemmtilegu innihaldi. Þetta bréf var frá KKÍ og í því stóð að það væri verið að bjóða mér í tæplega 2ja mánaða æfingabúðir í körfubolta, æft 5 sinnum í viku, 4 tíma í senn. Ég er afar spenntur fyrir þessu þar sem eru líkur á því að maður fái borgað fyrir að vera í þessu. Þetta þýðir reyndar að ég þurfi að redda mér gistingu einhversstaðar í bænum í 2 mánuði. Ég veit nú ekki alveg hvernig það á eftir að ganga en ég vona bara það besta. Er að fara í það mál bráðlega að redda mér gistingu, en þetta byrjar bara á mánudaginn. En ætli maður láti þetta ekki bara gott heita í bili.

EE


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 15:52:43 / Pungsviti

Ný skoðannkönnun!

Hér er komin ný skoðannakönnun. Endilega kjósið!




» 2 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 14:46:54 / Egill

Hvítasunnan

Nú jæja, það var mikið að maður nennti að skrifa eitthvað hér.

Loksins er maður byrjaður að vinna af krafti, en auðvitað er maður að vinna í Bónus. Helvíti fínt að vinna þar, ávallt svaka stemming og mikið fjör. Það hafa komið fyrir mörg snilldar atvik síðan ég byrjaði að vinna þarna en því miður var ég ekki vitni að þeim öllum. Helst ber að nefna: Svarta Icebergið, riddarabúninginn, skykkjurnar og svo bara taflið. Já, þetta sumar lofar bara góður sýnist mér.

Að öðru...

En já, á föstudaginn fór maður að vinna kl. 7 og var búinn um 5 leytið en þá voru skólaslitin. Þar fékk maður einkannirnar sínar og voru þar ágætar hjá mér. Eftir skólaslitin eða um 8 leytið var svo liðspartý hjá flokknum og var það hin mesta skemmtun, horfðum á mynd og átum sælgæti og þess háttar. Svo fórum við bara eitthvað út en sumir fóru til Rakelar en sumir í körfu á Starlem Volley.

Svo daginn aftur var aftur vinna kl. 7 til 19. Þá fékk maður sér að éta og rölti svo yfir á Garðaflöt 7 og hitti þá Atla, Hlyn og Ara. Þeir voru að spila nýja World Cup leikinn á PS2, fínn leikur. Við fórum svo út í körfu og vorum til c.a. 11 eða eitthvað. Þá fórum við í póker og horfðum á leikinn. Hlynur fór reyndar frekar snemma og Ari var bara að rugla í einhverju fólki á MSN-inu mínu. Þið sem lentuð í honum, ég vill hafa það á hreinu að þetta var EKKI ég :D. Svo var leikurinn búinn um 3 leytið þá fóru þeir. Svo vaknaði maður um hádegisbilið og fór með þeim (Atla og Ara) á pulsuvagninn og þar torguðum við tveim pulsum á kjaft, bestu pUlsur í heimi!

Á eftir er ég svo að fara í fermingarveislu hjá Hlyni og svo er ekkert planað fyrir kvöldið. En ég læt þetta gott heita í bili.

EE


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 13:38:42 / Egill

Myndband!

Jæja Rabbi, núna geturu slakað á! Video-ið sem þú ert búinn að vera að suða um er loksins komið á netið!

Fyrir ykkur sem vitið ekki hvað þetta er þá er þetta eitt besta eftirherm seinni ára. Þarna er Arna Dögg að reyna að hoppa uppí hring á einhverri Danskri körfu og gefur frá sér þessi hljóð í leiðinni. Siggi kemur svo rétt á eftir með nákvæmlega eins hljóð.

Smellið á linkinn til að sjá myndbandið -> http://www.youtube.com/watch?v=g9m0H42U8vc

» 2 hafa sagt sína skoðun